Við hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar viljum endilega heyra þína skoðun! Í tengslum við Menntamorgun ferðaþjónustunnar á Akureyri þann 9. apríl, þar sem við rýnum í öryggismál greinarinnar, höfum við sett af stað stutta viðhorfskönnun í samstarfi við Markaðsstofur landshlutanna, Ferðamálastofu og Samtök ferðaþjónustunnar.
Markmið okkar er að efla samtalið um öryggi og fá skýrari mynd af þeim tækifærum og áskorunum sem þið mætið í ykkar daglega starfi.
Af hverju að taka þátt?
- Þín rödd skiptir máli og niðurstöðurnar hjálpa okkur að móta fræðslu sem nýtist greininni í raun.
- Öryggi er hornsteinn gæða í ferðaþjónustu og við gerum betur þegar við vinnum saman.
- Það tekur aðeins örfáar mínútur að svara. Fyllsta trúnaðar er gætt og öll svör eru órekjanleg.
Við hvetjum jafnt rekstraraðila sem starfsfólk til að deila sinni upplifun. Leggjum okkar af mörkum til að gera íslenska ferðaþjónustu enn faglegri og öruggari!

